Tobias og sætabrauðið
Danskir ferða- og matreiðsluþættir. Sætabrauðsdrengurinn og ferðalangurinn Tobias Hamann-Pedersen leggur land undir fót og kynnist bakstri og lífi víða um heim.Start: 2026-11-02-152500
end: 2026-11-02-161000
Reimleikar
Þáttaröð þar sem draugatrú Íslendinga tekin til skoðunar ásamt annarri þjóðtrú, á borð við hjátrú og trú á álfa. Rætt er við ýmsa sérfræðinga og þá sem hafa haft persónuleg kynni af afturgöngum, álfum eða framliðnum. Rýnt er í hvernig draugatrú endurspeglar samfélagið, menninguna og síðast en ekki síst, sálarlíf og samvisku mannsins. Umsjón: Bryndís Björgvinsdóttir. Dagskrárgerð: Rakel Garðarsdóttir.Start: 2026-11-02-161000
end: 2026-11-02-164000
Myndasögur
Stuttir þættir um sögurnar á bak við áhugaverðar ljósmyndir. Í hverjum þætti er fjallað um eina ljósmynd og sögu hennar – hvað var að gerast þegar myndin var tekin, hverjar voru aðstæður fólksins á ljósmyndinni og hvert er samhengið við nútímann? Leikstjóri: Þorsteinn J. Framleiðsla: Þetta líf, þetta líf. Fjallað er um ljósmynd sem tekin var í tilefni 75 ára afmælis Júlíönu Friðriku Tómasdóttur. Gylfi Pálsson, barnabarn Júlíönu Friðriku, segir frá ömmu sinni og stórfjölskyldunni. Hörður Geirsson, safnstjóri ljósmynda á Minjasafni Akureyrar, segir nánar frá ljósmyndinni og ljósmyndaranum, syni Júlíönu Friðriku, Eðvarði Sigurgeirssyni.Start: 2026-11-02-164000
end: 2026-11-02-170000
Grænkeramatur
Sænskir matreiðsluþættir með vinkonunum Karoline og Elenore þar sem þær elda spennandi og gómsæta grænkerarétti úti í guðsgrænni náttúrunni.Start: 2026-11-02-170000
end: 2026-11-02-173000